Lúðrasveitin Svanur
Könnun
Ert þú alvöru Svanur og ætlar að mæta á hreingerningardaginn 31.okt. kl.17?
Pottþétt
0 atkvæði

Ó nei, ég er ræfill og félagsskítur
0 atkvæði

nei, er að vinna
0 atkvæði

veit ekki
0 atkvæði

Fjöldi atkvæða: 0
30.03.2010 10:16:01 / svansarar

Æfingar fram að tónleikum

5. apríl (annar í páskum) kl.16:00 - 17:30
7. apríl (miðvikud.) kl.20:00
9. apríl (föstud.) Gleði æfing kl. 19:30 - ?
12. apríl (mánud.) Loka æfing kl.20:00


» 1 hafa sagt sína skoðun

02.03.2010 08:16:58 / svansarar

Raddæfingar næsta laugardag 6.mars

Kl.10:00 Slagverk
Kl.11:30 Klarínett, flautur og saxar
Kl.13:00 Trompetar og horn
Kl.14:00 Básúnur, baritónar og túbur

Það verður engin samæfing þennan dag.

» 0 hafa sagt sína skoðun

18.01.2010 22:41:33 / svansarar

Árgjald / Árshátíðargjald

Sæl öll

Nú er komið að því að greiða árgjaldið. Vinsamlegast leggið inn á reikning:

nr. 0137-26-013715
kt. 640269-2869
4000 kr.

Nóg er að borga um mánaðarmótin.
Árgjaldið fer upp í árshátíðina svo þið eruð í raun að greiða fyrir hana með þessu :)

Kv. Guðrún gjaldkeri

» 0 hafa sagt sína skoðun

02.01.2010 18:03:28 / svansarar

1.sta æfing ársins

Gleðilegt ár elsku svanirnir mínir.
1. sta æfing ársins verður mánudaginn 11. janúar kl.20:00.
Þá byrjum við að æfa ný verk sem verið er að semja sérstaklega fyrir okkur og verða frumflutt á 80 ára afmælistónleikum Svansins í vor.
Vonast til að sjá sem flesta.

Matti

» 0 hafa sagt sína skoðun

07.12.2009 07:59:22 / svansarar

Æfing í kvöld

Það er æfing í kvöld kl.20:00. 
Mætið tímanlega svo við getum hætt snemma:lol:

Við erum að spila á miðvikudaginn kl.15:00
Vonandi komast sem flestir þá;)

Sjáumst í stuði !
Matti

» 0 hafa sagt sína skoðun

17.11.2009 08:48:37 / svansarar

Tónleikar á miðvikudag

Þeir sem geta mæta kl.17:00 á Lindargötu, því fleiri því betra. 
Aðrir þurfa að vera mættir kl.17:45 í allra síðasta lagi í Ráðhúsið. Sameiginleg æfing með L.V.byrjar á slaginu 18:00. Tónleikarnir byrja svo kl.20:00.
Allir mæta í hvítri skyrtu, svörtum buxum, svörtum sokkum og skóm og með svart bindi. Eftir æfinguna kl.18:00 verður boðið upp á eitthvað að borða.

Sjáumst í stuði.

Matti


» 2 hafa sagt sína skoðun

10.11.2009 12:02:59 / svansarar

Æfingardagur á laugardaginn

Þá er komið að æfingardeginum góða. 

Æfingar verða sem hér segir:

Kl.10:00 Klarínett, flautur og sópran sax
Kl.11:00 Saxófónar
Kl.12:00 Básúnur, Túbur, Baritónn og Horn
Kl.13:00 Trompetar
Kl.14:00 Slagverk
Kl.15:00 Samæfing

Ef allt gengur samkv. áætlun þá ætti samæfingin að vera búin um 16:30 ca

Sjáumst kát ;)

Matti

» 0 hafa sagt sína skoðun

01.11.2009 17:41:33 / svansarar

Halló! Vínpartí!

Já, krakkar, það er komið að því! Nú þegar hefur hin frábæra og nýkosna skemmtinefnd skipulagt ölvun fyrir ykkur. Næstu helgi verður seinborin hrekkjavaka fyrir B-fólk sem svaf yfir síðustu helgi.

Gleðin verður haldin að Lindargötunni gömlu (nú tandurhreinni og fínni) föstudaginn 6. nóvember klukkan 9 pm.

Að sjálfsögðu er alger skylda að mæta í búningum, og þá eingöngu í krípí hrekkjavökubúningum. Fyrir þá sem gera þetta ekki verða refsibúningar.

Það er eins gott að þú mætir, aulinn þinn!

Kveðja,
-Skemmtó

» 3 hafa sagt sína skoðun

23.10.2009 22:59:22 / svansarar

Nýr formaður

Freyr Guðmundsson er nýr formaður Svansins. 
Um leið og ég bíð hann hjartanlega velkomin til starfa vil ég þakka Möggu fyrir frábært starf sl.ár.
Hlakka til að starfa með Freysa, enda eðal maður þar á ferð8).

Matti

» 2 hafa sagt sína skoðun

19.10.2009 22:57:22 / svansarar

Aðalfundur

Nú er komið að aðalfundi Svansins.  Fundurinn verður haldinn á
Lindargötunni miðvikudaginn 21. október og hefst hann klukkan 20:00.

Verkefni aðalfundar eru eftirfarandi:

1.      Skýrsla stjórnar og annarra starfsmanna
2.      Lagðir fram endurskoðaðir reikningar
3.      Inntaka nýrra félaga
4.      Lagabreytingar
5.      Stjórnarkosningar
6.      Kosning annarra embættismanna og nefnda
7.      Ákveðið gjald næsta starfsárs
8.      Önnur mál

Þau stjórnarembætti sem kosið verður til eru:
Formaður, vara-formaður, gjaldkeri, ritari og meðstjórnandi

Þá verður kosið í hina gríðarlega mikilvægu skemmtinefnd.
Að endingu verður svo kosið um önnur embætti
Þeir sem áhuga hafa á einhverju embættanna eru hvattir til þess að bjóða
sig fram.

Sjáumst kát:lol:

» 1 hafa sagt sína skoðun

14.10.2009 17:51:58 / svansarar

Samskips-spilið

Minni á spilið fyrir Samskip á morgun. Mæting kl. 11:30 í Kjalarvogi. Farið inn um viðskiptamannainngang og upp á 3. hæð. Þar eigum við að hitta Auði Þórallsdóttur. Mæta í svörtum buxum og skóm og hvítu að ofan.
Hér er kort af svæðinu 
http://ja.is/kort/#q=index_id:424080&x=361583&y=407007&z=9

Farið er niður Holtaveg, framhjá Hagkaup (þar sem IKEA var) og alveg niður í botn á götunni. Samskip er merkt með gulri blöðru með A inni :haha:

Jakkarnir og nóturnar verða á staðnum

Sjáumst hress
Magga


» 1 hafa sagt sína skoðun

08.10.2009 09:37:37 / svansarar

Spila 15. okt.

Sælir ungarnir mínir.

Næstkomandi fimmtudag eigum við að spila hjá Samskipum. Þeir eru að hita upp fyrir árshátíðina sína sem er á næstunni. ATH! SPILAÐ Í HÁDEGINU! Mæting í Samskipum kl. 11:30, byrjum að spila ca. 11:50 og spilum til 12:30 ca. Í þetta þurfum við nokkra lykilspilara eins og túbu og trommara og svo að sjálfsögðu alla sem komast. Vonast til að sjá sem flesta. Meiri upplýsingar á æfingu á mánudag :)

Kveðja
Magga spilaform.


» 0 hafa sagt sína skoðun

26.09.2009 08:47:16 / svansarar

Spilerí 3 og 4 okt.

Kæru Svanir. Við verðum að spila fyrir úrslitaleiki Visa bikarsins á Laugardalsvellinum 3 og 4 október. Úrslitaleikur karla er á laugardaginn og úrslitaleikur kvenna á sunnudaginn. Það er mikill heiður að Ksí skuli hafa samband við okkur aftur og því verðum við að manna sveitina vel báða dagana. 
Við spilum í ca.20 mín.frá kl.13:30 báða dagana. Mæting kl.13:00 á Laugardalsvöll.
Sjáumst kát á æfingu:lol:

Matti

» 1 hafa sagt sína skoðun

11.09.2009 20:53:47 / svansarar

Fyrsta æfing vetrarins

Þá fer að koma að fyrstu æfingu vetrarins:lol: vei !
Hún verður nk.mánudag 15.sept.
Það er spennandi vetur framundan. 80 ára afmælistónleikar verða haldnir næsta vor og eru 4 tónsmiðir byrjaðir að semja 1 lag hver af því tilefni. Mjög spennandi:p
Sameiginlegir tónleikar með Verkalýðnum verða í nóvember og svo verður gömul hefð tekin upp aftur og haldnir verða aðventutónleikar 1.sta sunnudaginn í aðventu sem verða jólatónleikar með nokkrum klassískum verkum í bland.

Æfingin hefst kl.20:00 og vil ég minna fólk á að mæta tímanlega svo hægt sé að byrja á slaginu 8.

Hlakka til að sjá ykkur.

Matti


» 1 hafa sagt sína skoðun

25.08.2009 13:01:18 / svansarar

Kveðjupartý Ernu og Guggu

Kveðjupartý fyrir Ernu og Guðrúnu verður haldið föstudaginn 4. september í Svansheimilinu, gleðin byrjar um 9 leitið !

Allir að koma og knúsa stelpurnar bless :lol:

skemmtó


» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 12
Talning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 143 dögum
Afmælistónleikar í íslensku óperunni
Talning
Eftir 6 daga
Bad orb
RSS tengill